Yfir morgunkaffinu las hann
bráðskemmtilega grein um það hvernig Internetið var að gera mannfólkið allt þrútið og sigið af þunglyndi og depurð og geðveikt. Hann borðaði
crêpe með sykri og sítrónu og í greininni var meðal annars fjallað um ungt par sem svelti barnið sitt til dauða á meðan það hlúði að stafrænu barni á Netinu.