skeggið á mér
er orðið nokkuð gerðarlegt
þykkt og rautt
hins vegar vekja
mér ramman ugg
nokkur grá hár á hægri kjálka
eins eru augu mín
nú fyrst að ljúkast upp
fyrir veröldinni
en á sama tíma skelfir mig
að sjónin skuli daprast
jafnhliða þeirri vakningu
en þannig er
þetta sjálfsagt:
við brögðum
með tungubroddinum
hunangsdropa
og skömmu síðar birtist hrákaldur veruleikinn
til að höggva tunguna
úr kjaftinum