Öll þurfum við að gegna hlutverki í tilverunni, finna okkur tilgang.
Til dæmis situr oft á sama kaffihúsi og ég kona ein sem snýtir sér mjög mikið. Á hverjum degi klippir hún niður svona á að giska þúsund síður af dagblaðapappír, með stórum, rauðum skærum, skjálfhent. Síðan límir hún ljósmyndirnar og greinarnar inn í litlar stílabækur, á milli þess sem hún snýtir sér.
Hún er konan
Hún er konan sem klippir út fréttir.