Tveir líkamar augliti til auglitis
eru stundum tvær öldur
og nóttin haf.
Tveir líkamar augliti til auglitis
eru stundum tveir steinar
og nóttin auðn.
Tveir líkamar augliti til auglitis
eru stundum rætur
samanfléttaðar í nóttinni.
Tveir líkamar augliti til auglitis
eru stundum rýtingar
og nóttin elding.
Tveir líkamar augliti til auglitis
eru tvær stjörnur sem falla
á auðum himni.
– Eftir Octavio Paz, í þýðingu Jóhanns Hjálmarssonar